Nokia 6290 - Öryggisatriði

background image

Öryggisatriði

Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur það verið hættulegt
eða varðað við lög. Lesa skal alla notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.

ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU

Ekki má kveikja á tækinu þar sem notkun þráðlausra síma er bönnuð
eða þar sem hún kann að valda truflunum eða hættu.

UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR

Fara skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa hendur
frjálsar til að stýra ökutækinu við akstur. Umferðaröryggi skal ganga
fyrir í akstri.

TRUFLUN

Öll þráðlaus tæki geta verið næm fyrir truflunum, sem getur haft
áhrif á virkni þeirra.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM Á SJÚKRASTOFNUNUM

Virða skal allar takmarkanir. Slökkva skal á tækinu nálægt
lækningabúnaði.

HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM Í FLUGVÉLUM

Virða skal allar takmarkanir. Þráðlaus tæki geta valdið truflunum í
flugvélum.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN ELDSNEYTI ER TEKIÐ

Ekki nota tækið nærri eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda við
eldsneyti eða sterk efni.

SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM VERIÐ ER AÐ SPRENGJA

Virða skal allar takmarkanir. Ekki nota tækið þar sem verið er að
sprengja.

NOTIST AF SKYNSEMI

Notist aðeins í hefðbundinni stöðu eins og lýst er í leiðbeiningum
með vörunni. Forðast skal óþarfa snertingu við loftnetið.

NOTIST AF SKYNSEMI

Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða gera við þessa vöru.

AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR

Aðeins má nota samþykkta aukahluti og rafhlöður. Ekki má tengja
saman ósamhæf tæki.

background image

Ö r y g g i s a t r i ð i

7

VATNSHELDNI

Tækið er ekki vatnshelt. Halda skal því þurru.

ÖRYGGISAFRIT

Muna skal að taka öryggisafrit eða halda skrá yfir allar mikilvægar
upplýsingar sem geymdar eru í tækinu.

TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI

Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók með því
vandlega, einkum upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja saman
ósamhæf tæki.

NEYÐARHRINGINGAR

Tryggja skal að kveikt sé á símaaðgerðum tækisins og þær séu virkar.
Ýta skal á endatakkann eins oft og þarf til að hreinsa skjáinn og fara
aftur í biðstöðu. Sláðu inn neyðarnúmerið og ýttu á hringitakkann.
Gefa skal upp staðarákvörðun. Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu
leyfi til þess.

Um tækið

Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari handbók er samþykkt til notkunar í GSM
850, 900, 1800 og 1900 og UMTS 2100 símkerfunum. Þjónustuveitan gefur
nánari upplýsingar um símkerfi.

Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða staðbundnar venjur,
einkalíf og lögmæt réttindi annarra, þ.m.t. höfundarrétt.

Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt sé að afrita, breyta, flytja eða
framsenda myndir, tónlist (þ.m.t. hringitóna) og annað efni.

Tækið styður internettengingar og aðrar tengiaðferðir. Líkt og með tölvur geta
vírusar, skaðleg skilaboð og forrit, ásamt öðru skaðlegu efni haft áhrif á tækið.
Gæta skal varúðar og aðeins opna skilaboð, samþykkja tengibeiðnir, hlaða niður
efni og samþykkja uppsetningar frá traustum aðilum. Til að auka öryggi tækisins
ættir þú að hugleiða að setja upp vírusvarnarbúnað með uppfærsluþjónustu og
nota eldvegg.

Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki, annarra en vekjara,
þarf að vera kveikt á tækinu. Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun
þráðlausra tækja getur valdið truflun eða hættu.

Skrifstofuforritið styður helstu valkosti Microsoft Word, PowerPoint og Excel
(Microsoft Office 2000, XP og 2003). Ekki er hægt að skoða öll skráarsnið.

background image

Ö r y g g i s a t r i ð i

8

Sérþjónusta

Til að hægt sé að nota símann verður áskrift að þjónustuveitu fyrir þráðlausa
síma að vera fyrir hendi. Margir af valkostum símans flokkast undir sérþjónustu.
Ekki er hægt að nota þessa valkosti í öllum símkerfum. Í öðrum símkerfum kann
jafnframt að vera farið fram á sérstaka skráningu fyrir þessari þjónustu.
Leiðbeiningar ásamt upplýsingum um gjald fyrir þjónustuna fást hjá
þjónustuveitu. Sum símkerfi kunna að hafa takmarkanir sem hafa áhrif á hvernig
hægt er að nota sérþjónustu. Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla séríslenska bókstafi
og þjónustu.

Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar aðgerðir væru hafðar óvirkar
eða ekki gerðar virkar í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins.
Tækið kann einnig að hafa verið sérstillt, t.d. kann heitum, röð og táknum
valmynda að hafa verið breytt. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.

Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL) sem keyra á TCP/IP
samskiptareglum. Sumar aðgerðir þessa tækis, svo sem netvafur, tölvupóstur,
kallkerfi, spjall og margmiðlunarboð krefjast símkerfisstuðnings við þessa tækni.

Aukahlutir, rafhlöður og hleðslutæki

Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru notuð með þessu tæki.
Þetta tæki er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið orku frá AC-3, AC-4, AC-5 og
DC-4 hleðslutækjum eða CA-44 millistykki.

Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki og aukahluti sem
Nokia hefur samþykkt til nota með þessari tilteknu tegund. Ef notaðar
eru aðrar gerðir gæti öll ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri notkun
getur fylgt hætta.

Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti sem samþykktir eru til
notkunar. Þegar aukahlutur er tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki
leiðsluna.

background image

A l m e n n a r u p p l ý s i n g a r

9