Töflureiknisskrár skoðaðar
Skruna skal um skjalið til að skoða það.
Til að skipta um vinnublöð skaltu velja
Valkostir
>
Vinnublað
.
Leitað er að texta innan gildisreits eða formúlu í töflureiknisskrá með
því að velja
Valkostir
>
Leitarvalkostir
>
Finna
.
Til að breyta hvernig skráin birtist velurðu
Valkostir
og úr eftirfarandi
valkostum:
Fletta
— Til að fletta milli bálka í skjali. Skrunaðu að þeim bálk sem þú
vilt velja og styddu á hann.
Stækka/minnka
— Til að súmma að eða frá.
Festa rúður
— Til að halda röðum og dálkum fyrir ofan og vinstra megin
við valda reitinn sýnilegum.
Breyta stærð
— Til að stilla stærð dálka eða raða.