Símkerfi
Símkerfi
—Til að velja hvaða símkerfi skal nota (birtist aðeins ef
þjónustuveitan styður það). Ef
Tvöfalt kerfi
skiptir tækið sjálfkrafa á milli
GSM- og UMTS-símkerfanna í samræmi við kerfisstillingar og
reikisamninga á milli símafyrirtækjanna.
Val á símafyrirtæki
—Til að stilla símann þannig að hann leiti að og velji
sjálfvirkt eitt af þeim símkerfum sem eru í boði skaltu velja
Sjálfvirkt
. Til
að velja tiltekið símkerfi handvirkt af lista skaltu velja
Handvirkt
. Ef
tengingin við símkerfið sem valið var handvirkt rofnar, spilar síminn
hljóðmerki og biður þig um að velja símkerfi aftur. Símkerfið sem valið
er verður að vera með reikisamning við heimasímkerfið þitt, þ.e.
fyrirtækið sem lét þig fá SIM-kortið þitt.
Um endurvarpa
(sérþjónusta) — Til að stilla símann þannig að hann gefi
til kynna þegar hann er notaður í símkerfi sem byggist á örbylgjutækni
(MCN) og til að virkja móttöku upplýsinga um endurvarpa skaltu velja
Virkar
.