Nokia 6290 - Snið

background image

Snið

Veldu

Valmynd

>

Stillingar

>

Snið

.

Í

Snið

er hægt að stilla og sérsníða tóna símans fyrir mismunandi

viðburði, umhverfi og viðmælendahópa. Þú getur séð hvaða snið er valið
efst á skjánum í biðham. Ef sniðið

Almennt

er í notkun sést aðeins

dagsetningin.

Til að gera sniðið virkt skaltu velja það og síðan

Gera virkt

.

Ábending: Til að skipta í flýti í

Án hljóðs

úr öðru sniði skaltu

halda # inni í biðham.

Til að sérsníða snið skaltu velja snið,

Sérsníða

og úr eftirfarandi

valkostum:

Hringitónn

—Til að stilla hringitón fyrir símtöl skaltu velja tón af

listanum. Styddu á hvaða takka sem er til að slökkva á tóninum. Þú
getur einnig breytt hringitónum í tengiliðum. Sjá „Hringitónn settur inn“
á bls. 49.

Hringitónn myndsímt.

—Til að velja hringitón fyrir myndsímtöl.

Segja nafn hringj.

—Veldu

Kveikt

Til að síminn spili nafn þess sem hringir

hverju sinni.

Gerð hringingar

—Þegar

Styrkur eykst

er valið byrjar hljóðstyrkurinn á

lægsta stigi og hækkar svo stig af stigi þar til því stigi sem hefur verið
valið er náð.

Hljóðst. hringingar

—Til að velja hljóðstyrk hringitóna og hljóðmerki

skilaboða.

Viðv.tónn skilaboða

—Til að velja tón texta- og margmiðlunarboða.

Viðv.tónn tölvupósts

—Til að velja tón fyrir tölvupóstskeyti.

Varar við með titringi

—Til að láta símann titra þegar einhver hringir í þig

eða sendir þér skilaboð.

Takkatónar

—Til að stilla hljóðstyrk takkatónanna.

Aðvörunartónar

— Til að gera viðvörunartóna virka eða óvirka.

background image

S t i l l i n g a r

82

Gera viðvart um

—Til að stilla símann þannig að hann hringi aðeins þegar

hringt er úr símanúmeri sem tilheyrir tilteknum hópi tengiliða. Ekkert
heyrist þegar fólk utan hópsins hringir í þig.

Nafn sniðs

—Til að gefa sniðinu nafn. Þessi stilling birtist ekki í sniðunum

Almennt

og

Ótengdur

.

Þegar sniðið

Ótengdur

er notað er síminn ekki tengdur við farsímakerfið.

Ef ekkert SIM-kort er í símanum skaltu ræsa símann í sniðinu

Ótengdur

til að geta notað sumar aðgerðir.

Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki hægt að hringja, svara símtölum
eða nota aðra valkosti þar sem þörf er á tengingu við farsímakerfi.
Áfram kann að vera hægt að hringja í það neyðarnúmer sem er forritað
í tækið. Eigi að hringja verður fyrst að virkja símaaðgerðina með því að
skipta um snið. Ef tækinu hefur verið læst skal slá inn lykilnúmerið.