Nokia 6290 - Bluetooth-tenging

background image

Bluetooth-tenging

Bluetooth-tækni heimilar þráðlausa tengingu á milli rafeindatækja sem
eru í allt að 10 metra (33 feta) fjarlægð hvort frá öðru. Bluetooth-
tengingu má nota til að senda myndir, myndinnskot, texta, nafnspjöld
eða minnispunkta dagbókar, sem og til að tengjast við samhæf
Bluetooth-tæki, svo sem við tölvur.

Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2.0 sem styður eftirfarandi
snið: Dial Up Networking, Serial Port, File Transfer, Handsfree, Headset, Basic
Imaging, SIM Access og Generic Access. Til að tryggja samvirkni milli annarra
tækja sem styðja Bluetooth-tækni skal nota aukahluti sem eru viðurkenndir af
Nokia fyrir þessa tegund. Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum annarra tækja
um samhæfi þeirra við þetta tæki.

Takmarkanir kunna að vera á notkun Bluetooth-tækni á sumum stöðum. Kanna
skal það hjá yfirvöldum á staðnum eða þjónustuveitunni.

Aðgerðir sem nota Bluetooth-tækni eða leyfa slíkum aðgerðum að keyra í
bakgrunni meðan aðrar aðgerðir eru notaðar krefjast aukinnar rafhlöðuorku og
minnka endingu rafhlöðunnar.