Nokia 6290 - Opnunarlyklar

background image

Opnunarlyklar

Veldu

Valmynd

>

Stillingar

>

Gagnastjóri

>

Opn.lyklar

til að skoða

opnunarlykla stafrænna réttinda sem eru geymdir í símanum þínum.

Til að skoða gilda lykla ( ) sem eru tengdir einni eða fleiri miðlunarskrá
skaltu velja

Gildir lyklar

. Lyklahópur, sem inniheldur nokkra lykla, er

sýndur með

. Til að sjá lyklana í lyklahópnum skaltu velja lyklahópinn.

Til að skoða ógilda lykla (

) þar sem notkunartími skráarinnar er

útrunninn skaltu velja

Ógildir lyklar

. Til að kaupa meiri notkun eða lengja

notkunartíma skráarinnar skaltu skruna að lykli og velja

Valkostir

>

Sækja opnunarlykil

. Ekki er víst að hægt sé að uppfæra opnunarlykla ef

móttaka vefþjónustuboða er óvirk. Sjá „Stillingar þjónustuboða“ á
bls. 46.

Til að skoða opnunarlykla sem eru ekki í notkun skaltu velja

Lyklar án

notk.

. Engar skrár eru tengdar ónotuðum opnunarlyklum.

Til að skoða nákvæmar upplýsingar, svo sem gildistíma og það hvort
hægt sé að senda skrána, skaltu skruna að opnunarlykli og styðja á
skruntakkann.

background image

S t j ó r n a n d i g a g n a

117

Stafræn réttindi

Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir stafrænnar réttindatækni
(DRM) til að vernda hugverkarétt sinn, þ.m.t. höfundarrétt. Þetta tæki notar
mismunandi gerðir stafrænnar tækni til að opna stafrænt varið efni. Í þessu tæki
er hægt að opna efni sem er verndað með OMA DRM 2.0 og OMA DRM 1.0. Ef
tiltekinn stafrænn hugbúnaður nær ekki að verja efni kunna efniseigendur að
biðja um að geta slíks hugbúnaðar til að opna nýtt efni sem er varið með
stafrænum réttindum sé endurvakin. Slíkt kann einnig að hindra endurnýjun þess
stafræns varins efnis sem er þegar í tækinu. Endurvakning slíks hugbúnaðar hefur
ekki áhrif á notkun efnis sem er verndað með öðrum gerðum stafrænna réttinda
eða notkun efnis sem ekki er verndað með stafrænum réttindum.

Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir opnunarlykill sem
tilgreinir hvernig hægt er að nota efnið.

Ef tækið er með OMA DRM varið efni skal nota öryggisafritunaraðgerðina í Nokia
PC Suite til að taka öryggisafrit af bæði opnunarlyklunum og efninu. Ef notaðar
eru aðrar flutningsaðferðir er ekki víst að opnunarlyklarnir, sem þarf að
endursetja ásamt OMA DRM-vörðu efni eftir að minni tækisins er forsniðið, verði
fluttir með efninu. Einnig gæti þurft að endursetja opnunarlyklana ef skrár í
tækinu skemmast.

Sumir opnunarlyklar kunna að vera tengdir tilteknu SIM-korti og aðeins er hægt
að opna verndaða efnið ef SIM-kortið er í tækinu.

background image

U p p l ý s i n g a r u m r a f h l ö ð u

118