Nokia 6290 - Stjórnandi forrita

background image

Stjórnandi forrita

Þú getur sett upp tvenns konar forrit og hugbúnað í símanum þínum:

J2ME

TM

forrit byggð á Java

TM

tækni með endingunni .jad eða .jar.

Ekki er hægt að setja PersonalJava

TM

forrit upp í símanum

þínum.

Önnur forrit og hugbúnaður sem henta Symbian-stýrikerfinu.
Uppsetningarskrárnar hafa endinguna .sis. Settu aðeins upp
hugbúnað sem er sérstaklega hannaður fyrir símann.

Hægt er að flytja uppsetningaskrár í símann þinn frá samhæfðri tölvu,
hlaða þeim niður meðan þú vafrar eða senda þær til þín sem
margmiðlunarboð, sem tölvupóstsviðhengi eða með Bluetooth-
tengingu. Þú getur notað Nokia Application Installer í Nokia PC Suite til
að setja upp forrit í símanum eða á minniskorti.

Uppsetningarskrár (.sis) eru áfram í minni tækisins eftir að forrit þeirra hafa verið
sett upp á samhæfu minniskorti. Skrárnar geta tekið mikið minni og valdið því að
ekki sé hægt að vista aðrar skrár. Til að losa um minni skaltu nota Nokia PC Suite
til að taka öryggisafrit af uppsetningarskrám og setja afritið á samhæfa tölvu. Að
því loknu skaltu nota Skráarstjórann til að eyða uppsetningarskránum úr minni
tækisins. Sjá „PC Suite“ á bls. 99 og „Skráarstjórn“ á bls. 114. Ef .sis-skráin hefur
verið send sem viðhengi í skilaboðum skal eyða skilaboðunum úr innhólfinu.

Til að opna

Stjórn. forrita

skaltu velja

Valmynd

>

Stillingar

>

Gagnastjóri

>

Stj. forrita

.