Uppsetning forrits
Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og annan hugbúnað frá
traustum aðilum, t.d. forrit með Symbian Signed eða forrit sem hafa
verið prófuð með Java Verified
TM
.
Áður en forrit er sett upp í
Stjórn. forrita
skaltu skruna að
uppsetningarskránni og velja
Valkostir
>
Skoða frekari uppl.
til að skoða
upplýsingar, t.d.um gerð forritsins, útgáfunúmer og seljanda eða
framleiðanda forritsins.
S t j ó r n a n d i g a g n a
113
Nauðsynlegt er að hafa .jar-skrá til að setja upp Java-forrit. Ef skrána
vantar getur síminn beðið þig um að hlaða henni niður.
Til að setja upp forrit eða hugbúnaðarpakka:
1. Skrunaðu að uppsetningarskrá. Forrit sem sett eru upp á
minniskortinu eru merkt með
.
2. Veldu
Valkostir
>
Setja upp
.
Þú getur einnig leitað í minni símans eða á minniskortinu, valið
forritið og stutt á skruntakkann til að hefja uppsetninguna.
Meðan á uppsetningu stendur birtir síminn upplýsingar um stöðu
uppsetningarinnar. Ef þú setur upp forrit án stafrænnar undirskriftar
eða vottorðs birtir síminn viðvörun. Þú skalt aðeins halda áfram að
setja upp forritið ef þú ert viss um uppruna þess og innihald.
Til að sjá fleiri upplýsingar um forritið skaltu skruna að því og velja
Valkostir
>
Opna vefsíðu
. Ekki er víst að þessi valkostur sé tiltækur í
öllum forritum.
Til að sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið settir upp eða fjarlægðir,
og hvenær það var gert skaltu velja
Valkostir
>
Skoða notk.skrá
.