Nokia 6290 - Viðbótaröryggisupplýsingar

background image

Viðbótaröryggisupplýsingar

Lítil börn

Í tækinu og aukahlutum þess geta verið litlir hlutir. Þá skal geyma þar sem lítil
börn ná ekki til.

Vinnuumhverfi

Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk útvarpsbylgna (RF) við notkun
annað hvort í hefðbundinni stöðu við eyra eða þegar það er haft að minnst kosti
2,2 sentímetra (7/8 tommur) frá líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða hald er
notað þegar tækið er borið á réttan hátt á líkamanum við notkun ætti slíkur
búnaður ekki að innihalda málm og halda ætti tækinu að minnsta kosti í þeirri
fjarlægð frá líkamanum sem nefnd var hér á undan.

Til að hægt sé að senda gagnaskrár eða skilaboð þarf þetta tæki góða tengingu
við símkerfið. Í sumum tilvikum getur sending gagna eða boða tafist þar til slík
tenging er tiltæk. Tryggja skal að ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum sé fylgt
þar til sendingu er lokið.

Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni gætu dregist að tækinu. Ekki má
geyma kreditkort eða aðra segulmagnaða hluti með geymsluminni nálægt
tækinu því upplýsingar sem þar eru geymdar gætu þurrkast út.

Lækningatæki

Notkun búnaðar sem sendir frá sér útvarpsbylgjur, þar með talin notkun
þráðlausra síma, kann að trufla virkni lækningatækja sem ekki eru nægilega vel
varin. Hafa skal samband við lækni eða framleiðanda lækningatækisins til þess að
komast að því hvort það sé nægilega vel varið fyrir utanaðkomandi
útvarpsbylgjum eða til að afla nánari upplýsinga. Slökkva skal á tækinu í
námunda við heilsugæslustöðvar ef auglýstar reglur þess efnis kveða á um að það
sé gert. Sjúkrastofnanir eða heilsugæslustöðvar kunna að nota búnað sem getur
verið næmur fyrir utanaðkomandi útvarpsbylgjum.

Ígrædd lækningatæki

Framleiðendur lækningatækja mæla með því að 15,3 sentímetrar (6 tommu)
lágmarksbil sé haft á milli þráðlauss tækis og ígrædds lækningatækis, svo sem
gangráðs eða ígrædds hjartarafstuðstækis, til þess að komist sé hjá hugsanlegri
truflun í lækningatækinu. Þeir sem eru með slík tæki ættu:

background image

V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r

124

Alltaf að halda þráðlausa tækinu í meira en 15,3 sentímetra (6 tommu)
fjarlægð frá lækningatækinu þegar kveikt er á þráðlausa tækinu.

Ekki að bera þráðlausa tækið í brjóstvasa.

Hafa þráðlausa tækið við eyrað sem er fjær lækningatækinu til að draga úr
líkum á truflunum.

Slökkva strax á þráðlausa tækinu ef einhver grunur leikur á að það valdi
truflun.

Lesa og fylgja leiðbeiningum framleiðanda ígrædda lækningatækisins.

Hafa skal samband við lækni ef einhverjar spurningar vakna varðandi notkun
þráðlauss tækis þegar ígrætt lækningatæki er til staðar.

Heyrnartæki

Tiltekin stafræn þráðlaus tæki geta truflað sum heyrnartæki. Ef truflun verður
skal leita til þjónustuaðila.

Ökutæki

Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í vélknúnum ökutækjum, séu
þau ekki rétt upp sett eða ekki nægilega varin, svo sem rafeindastýrða
eldsneytisgjöf, rafeindastýrð hemlakerfi (með læsivörn), rafeindastýrð hraðakerfi
og loftpúðakerfi. Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda bílsins eða
búnaðarins sem bætt hefur verið við eða fulltrúa hans.

Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja tækið upp í ökutæki.
Gölluð uppsetning eða viðgerð kann að valda hættu og ógilda hvers kyns ábyrgð
sem kann að vera á tækinu. Ganga skal reglulega úr skugga um að allur þráðlaus
tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt uppsettur og vinni rétt. Ekki má geyma eða
flytja eldfima vökva, lofttegundir eða sprengifim efni í sama rými og tækið, hluta
úr því eða aukahluti með því. Ef ökutæki er búið loftpúða skal hafa hugfast að
loftpúðar blásast út af miklum krafti. Ekki má setja hluti, þar með talinn
uppsettan eða færanlegan þráðlausan búnað, á svæðið yfir loftpúðanum eða á
útþenslusvið loftpúðans. Ef þráðlaus búnaður í bíl er illa settur upp og loftpúðinn
þenst út getur slíkt orsakað alvarleg meiðsl.

Notkun tækisins meðan á flugi stendur er bönnuð. Slökkva skal á tækinu áður en
gengið er um borð í flugvél. Notkun þráðlausra fjarskiptatækja í flugvél getur
skapað hættu við stjórn flugvélarinnar, rofið þráðlaust símasamband og verið
ólöglegt.

background image

V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r

125

Sprengifimt umhverfi

Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem hætta er á sprengingum og fara að
öllum tilmælum sem sjást á skiltum og leiðbeiningum. Sprengifimt andrúmsloft
telst vera á svæðum þar sem yfirleitt er beðið um að drepið sé á vél bifreiðar.
Neistaflug á slíkum svæðum getur valdið sprengingu eða eldi og haft í för með
sér slys og jafnvel dauðsföll. Slökkva skal á símanum á eldsneytisstöðvum, svo
sem við eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða skal takmarkanir á notkun
útvarpsbúnaðar í eldsneytisgeymslum, svæðum þar sem geymsla og dreifing
eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum eða þar sem verið er að sprengja. Svæði þar
sem sprengihætta er mikil eru oftast auðkennd en þó ekki alltaf. Þar á meðal eru
svæði undir þilfari á bátum; svæði þar sem sterk efni eru geymd eða búin til
flutnings; ökutæki sem nýta fljótandi svartolíugas (própan eða bútan) og svæði
þar sem í lofti eru efni eða agnir, til dæmis korn, ryk eða málmduft.

Neyðarhringingar

Mikilvægt: Þráðlausir símar, þar á meðal þetta tæki, nota útvarpsmerki,
þráðlaus kerfi, kapalkerfi og notendaforritaðar aðgerðir. Því er ekki
hægt að tryggja tengingar við hvaða skilyrði sem er. Því skyldi aldrei
treysta eingöngu á þráðlaust tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg
fjarskipti, t.d. í bráðatilvikum.

Neyðarsímtal:

1. Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal hvort nægilegur

sendistyrkur sé fyrir hendi.

Í tilteknum símkerfum kann að vera farið fram á að gilt SIM-kort sé rétt sett í
tækið.

2. Ýttu eins oft á endatakkann til að hreinsa skjáinn og gera tækið reiðubúið

fyrir símtöl.

3. Opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði er valið. Neyðarnúmer eru

breytileg eftir stöðum.

4. Styddu á hringitakkann.

Ef ákveðnar aðgerðir eru í notkun þarf ef til vill að gera þær óvirkar áður en
neyðarsímtal er mögulegt. Ef ótengda sniðið er virkt kann að vera þörf á að skipta
um snið til að virkja símaaðgerðina áður en hægt er að hringja neyðarsímtal.
Nánari upplýsingar má fá í þessari handbók eða hjá þjónustuveitunni.

Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar upplýsingar eins nákvæmlega
og kostur er. Þráðlausa tækið getur verið eina samskiptatækið á slysstað. Ekki má
slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.

background image

V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r

126

Upplýsingar um vottun (SAR)

ÞETTA ÞRÁÐLAUSA TÆKI SAMRÆMIST VIÐMIÐUNARREGLUM UM ÁHRIF AF
ÚTVARPSBYLGJUM.

Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki. Það er hannað með tilliti til
leyfilegra marka um áhrif af útvarpsbylgjum sem alþjóðlegar viðmiðunarreglur
mæla með. Þessar viðmiðunarreglur voru þróaðar af óháðu vísindastofnuninni
ICNIRP og innihalda öryggismörk sem ætlað er að tryggja öryggi allra, óháð aldri
og heilsufari.

Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur þráðlausra tækja er notuð mælieiningin
SAR (Specific Absorption Rate). Efri mörk SAR, samkvæmt viðmiðunarreglum
ICNIRP, eru 2,0 vött/kílógramm (W/kg) að meðaltali á hver 10 grömm af
líkamsvef. Mælingar á SAR eru gerðar í hefðbundnum notkunarstöðum þegar
tækið sendir af mesta leyfða styrk á öllum mældum tíðnisviðum. Raunverulegur
SAR-styrkur tækis í notkun getur verið lægri en hámarksgildið, þar sem tækið er
hannað til að nota aðeins þann styrk sem þarf til að ná sambandi við símkerfið.
Fjöldi þátta hafa áhrif á styrkinn, t.d. hversu langt notandinn er frá grunnstöð.
Samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP er hæsta SAR-gildi fyrir notkun tækisins
við eyra 0,47 W/kg.

Notkun aukabúnaðar getur valdið því að SAR-gildið sé annað. SAR-gildi kunna
að vera breytileg milli landa sökum mismunandi upplýsingaskyldu, krafna og
tíðnisviðs. Viðbótarupplýsingar um SAR má finna í upplýsingum um vörur á
www.nokia.com.

background image

A t r i ð i s o r ð a s k r á

127