■ Biðhamur
Þegar kveikt er á símanum, og hann er skráður hjá símafyrirtæki, er hann
í biðham og tilbúinn til notkunar.
Ef skipta á um snið er stutt á hætta-takkann og sniðið valið.
Styddu á hringitakkann til að opna lista yfir númer sem hringt hefur
verið í nýlega.
Haltu hægri valtakkanum inni til að nota raddskipanir eða raddstýrða
hringingu.
Tengingu er komið á við vefinn með því að halda inni 0.