Nokia 6290 - Rauf fyrir microSD-kort

background image

Rauf fyrir microSD-kort

Aðeins skal nota samhæf microSD-kort sem Nokia hefur
viðurkennt til notkunar með þessu tæki. Nokia styðst við
viðurkennda staðla fyrir minniskort. Þó getur verið að sum
kort sé ekki hægt að nota að fullu með þessu tæki. Ósamhæf
kort geta skaðað kortið og tækið og skemmt gögn sem vistuð
eru á kortinu.

Geyma skal microSD-kort þar sem lítil börn ná ekki til.

Hægt er að auka tiltækt minni með microSD-minniskorti. Hægt er setja
microSD-kort í símann eða fjarlægja það án þess að slökkva á símanum.

Mikilvægt: Fjarlægið ekki minniskortið meðan á aðgerð stendur og
kortið er í notkun. Ef kortið er fjarlægt í miðri aðgerð getur það valdið
skemmdum á minniskortinu og tækinu sjálfu og gögn sem geymd eru á
kortinu geta skemmst.

background image

S í m i n n þ i n n

23

Minniskorti komið fyrir
1. Opnaðu raufina fyrir minniskortið.

2. Settu minniskortið í raufina þannig

að gyllti snertiflöturinn snúi upp.
Ýttu kortinu varlega á sinn stað.

3. Lokaðu minniskortsraufinni.

Minniskort fjarlægt
1. Opnaðu raufina fyrir minniskortið.

Bíddu þar til

Fjarlægðu minniskort og styddu á 'Í lagi'

birtist.

2. Ýttu varlega á kortið til að losa það. Dragðu kortið út.

3. Lokaðu minniskortsraufinni.

background image

S í m t ö l

24