Nokia 6290 - Takkalás (Takkavari)

background image

Takkalás (Takkavari)

Til að koma í veg fyrir að stutt sé óvart á takka skaltu styðja á vinstri
valtakkann og * innan 1,5 sekúndu til að læsa takkaborðinu.

Til að taka læsinguna af skaltu velja

Úr lás

, og styðja á * innan 1,5

sekúndu.

Ef takkaborðið er læst og slökkt er á aðalskjálýsingunni skal ýta á
einhvern talnatakka til að kveikja á skjálýsingunni.

Til að læsa takkaborðinu þegar flipinn er lokaður skaltu ýta á vinstri
skjátakkann innan 1,5 sekúndu. Til að taka læsinguna af þegar flipinn er
lokaður skaltu velja

Úr lás

og

Í lagi

innan 1,5 sekúndu.

Þegar takkarnir eru læstir kann að vera hægt að hringja í opinbera
neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.