S í m t ö l
27
Styddu á hringja-takkann til að svara myndsímtalinu.
Leyfa
myndsendingar til þess sem hringir?
birtist. Ef þú velur
Já
birtist myndin
sem tekin var á myndavél tækisins hjá þeim sem hringir. Ef þú velur
Nei
eða gerir ekki neitt er engin mynd send og grár skjár birtist í staðinn fyrir
hreyfimyndina.
Jafnvel þó þú hafnir myndsendingu í myndsímtali er samt tekið gjald
fyrir símtalið sem myndsímtal. Upplýsingar um verð fást hjá
þjónustuveitunni.
Styddu á hætta-takkann til að ljúka myndsímtalinu.
Símtöl í bið (sérþjónusta)
Þegar talað er í símann er hægt að svara símtali í bið með því að styðja á
hringitakkann. Fyrra símtalið er sett í bið. Styddu á hætta-takkann til að
leggja á þann sem þú ert að tala við.
Til að ræsa aðgerðina
Símtal í bið
skaltu velja
Valmynd
>
Stillingar
>
Símstill.
>
Sími
>
Símtöl
>
Símtal í bið
>
Gera virkt
.
Til að skipta á milli símtalanna tveggja skaltu velja
Víxla
.