Nokia 6290 - Hefðbundin textaritun

background image

Hefðbundin textaritun

Styddu endurtekið á tölutakka, frá 1 til 9 þar til stafurinn birtist. Það eru
fleiri stafir á talnatakka en þeir sem eru prentaðir á hann. Það veltur á
tungumálinu hvaða stafi er hægt að velja. Sjá

Tungumál texta

í

„Tungumál“ á bls. 84.

Ef næsti stafur sem slá skal inn er á sama takka og stafurinn sem þú
varst að rita skaltu bíða þar til bendillinn birtist (eða skruna áfram til að
ljúka biðtímanum) og slá inn stafinn.

Til að rita tölustaf skaltu styðja á talnatakkann og halda honum inni.

Algengustu greinarmerki og sérstafi er að finna á takka 1. Til að fá fleiri
stafi skaltu halda * inni.

Styddu á hreinsitakkann til að eyða staf. Haltu hreinsitakkanum inni til
að eyða fleiri en einum staf.

Styddu á 0 til að setja inn bil. Styddu þrisvar sinnum á 0 til að færa
bendilinn í næstu línu.