Nokia 6290 - Sérstakar skilaboðategundir

background image

Sérstakar skilaboðategundir

Síminn getur tekið á móti margs konar skilaboðum, svo sem skjátáknum
símafyrirtækis, nafnspjöldum, dagbókarfærslum og hringitónum.

Til að opna móttekin skilaboð skaltu velja

Valmynd

>

Skilaboð

>

Innhólf

og tilteknu skilaboðin. Hægt er að vista innihald skilaboðanna í
símanum. Til að vista t.d. móttekna dagbókarfærslu í dagbókinni skaltu
velja

Valkostir

>

Vista í dagbók

.

Til athugunar: Eingöngu er hægt að nota myndskilaboð ef
símafyrirtæki eða þjónustuveita styðja notkun þeirra. Aðeins samhæf
tæki með möguleika á myndboðum geta tekið á móti og birt myndboð.
Útlit skilaboða getur verið breytilegt eftir móttökutækinu.