
■ Myndum breytt
Til að breyta myndum í
Gallerí
skaltu skruna að myndinni og velja
Valkostir
>
Breyta
.
Til að klippa mynd skaltu velja
Valkostir
>
Nota áhrif
>
Skurður
. Mynd
er klippt handvirkt með því að velja
Handvirkt
eða tiltekið hlutfall af
listanum. Ef þú velur
Handvirkt
birtist kross efst í vinstra horni
myndarinnar. Skrunaðu til að velja svæðið sem á að klippa og veldu
Festa
. Annar kross birtist neðst í hægra horninu. Veldu aftur svæðið sem
á að klippa. Til að stilla aftur fyrsta svæðið skaltu velja
Til baka
. Þau
svæði sem eru valin mynda ferhyrning utan um þá mynd sem kemur út
úr klippingunni.

G a l l e r í
51
Ef þú velur hlutfall skaltu velja efra hornið til vinstri þar sem á að klippa.
Notaðu skruntakkann til að stilla auðkennda svæðið. Hægt er að frysta
valið svæði með því að ýta á skruntakkann. Til að færa til svæðið innan
myndarinnar skaltu skruna. Ýttu á skruntakkann til að velja svæðið sem
á að klippa.
Hægt er að minnka rauðan lit í augum með því að velja
Valkostir
>
Nota
áhrif
>
Laga rauð augu
. Færðu krossinn að auganu og ýttu á
skruntakkann. Lykkja birtist á skjánum. Skrunaðu upp, niður, til vinstri
og til hægri til að breyta stærð lykkjunnar svo hún passi við augað. Ýttu
á skruntakkann til að minnka rauða litinn.
Flýtivísar í myndvinnslu:
• til að skoða mynd á öllum skjánum styddu á *. Styddu aftur á * til að
fara aftur í venjulegan skjá.
• Ýttu á 3 eða 1 til að snúa mynd réttsælis eða rangsælis.
• Ýttu á 5 eða 0 til að súmma að eða frá.
• Flett er um súmmaða mynd með því að skruna upp, niður, til vinstri
eða hægri.