Nokia 6290 - M i ð l u n a r b ú n a ð u r

background image

M i ð l u n a r b ú n a ð u r

58

Vistaða skrá

— Til að spila miðlunarskrár sem eru geymdar í minni

símans eða á minniskortinu.

Til að straumspila efni:

• Veldu straumspilunartengil sem er vistaður í galleríinu. Komið er á

tengingu við straumspilunarmiðlarann.

• Opnaðu straumspilunartengil á meðan þú vafrar á vefnum.

Til að straumspila efni verðurðu fyrst að setja upp stillingar fyrir
sjálfgefinn aðgangsstað þinn. Sjá „Aðgangsstaðir“ á bls. 91.

Margar þjónustuveitur fara fram á að þú notir internetaðgangsstað
(IAP) sem sjálfgefinn aðgangsstað. Aðrar þjónustuveitur leyfa notkun
WAP-aðgangsstaða. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.

Aðeins er hægt að opna rtsp:// vefföng í RealPlayer. Það er ekki hægt að
opna http:// vefföng. Hins vegar ber RealPlayer kennsl á http-tengil sem
vísar í .ram-skrá þar sem .ram-skrá er textaskrá sem inniheldur rtsp-
tengil.

Viðvörun: Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu þegar hátalarinn er
notaður því hljóðstyrkur getur verið mjög mikill.

Flýtivísar meðan á spilun stendur

Skrunaðu upp til að fara áfram í skránni eða niður til að fara til baka.

Styddu á hljóðstyrkstakkana til að hækka og lækka.